- Gefið út
Dagarnir þrír
- Rithöfundar
Í gær enduðu svokölluðu dagarnir þrír, skemmtilegir dagar sem heita Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur og hafa allir sínar eigin einstöku hefðir.
Efnisyfirlit
Bolludagur
Bolludagur er alltaf fagnaður á Mánudegi og á þá borðar fólk bollur og flengja hvort annað og segja „bolla“.
![Bollur](https://cms.biskupsreglan.com/static/images/faerslur/annad/bolludagur.webp)
Á þeim degi fengum við í 10. bekk að búa til bollur og gefa til yngri krakkana því við erum svo góðhjörtuð. Við erum svo ánægðir að þurfa ekki að vinna með 8. bekk í því að búa til bollur því annars hefðum við þurft að gera eitthvað ósegjanlegt.
Jóhann elskaði bollur og borðaði 4 en ég og Yahya vorum ekki eins svangir menn og borðuðum í hófi.
Sprengidagur
Sprengidagur er alltaf fagnaður daginn eftir bolludag og þá á fólk að borða saltkjöt og baunir
![Saltkjöt og baunir](https://cms.biskupsreglan.com/static/images/faerslur/annad/saltkj%C3%B6t-og-baunir.jpg)
Ég, Jóhann og Jón Steinar fengum okkur djússi sprengidagsmat en Yahya hafði ekki mikla list á þessum mat.
Eftir daginn þurftum við 3 að skella okkur á spítalann því maginn okkar sprakk því við borðuðum svo mikið.
Öskudagur
Öskudagur er alltaf fagnaður daginn eftir sprengidag og er langbesti dagurinn af þessum þrem. Á Öskudegi má fólk klæða sig í allskonar búninga, leika sér, slá köttinn í tunnunni og svo sníkja nammi um kvöldin.
![Donald trump búningur](https://cms.biskupsreglan.com/static/images/faerslur/annad/%C3%96skudagur.webp)
Ég, Jóhann og Yahya spiluðum fyrst leiki en fórum svo að leika okkur í salnum þar sem við hlógum að litlu krökkunum í blöðru leik. Við unnum samt ekki leikinn því við vildum ekki særa litlu krakkana og gera þá sorgmædda.
Næstum var kötturinn í tunnunni drepinn því eftir að við opnuðum tunnunna, þá ákvað 8. bekkur að berja köttinn til dauða því þeim finnst það gaman.
![slá köttinn úr tunnunni frétt](https://cms.biskupsreglan.com/static/images/faerslur/annad/sla-kott-ur-tunnu_lettir.png)
Matthías kom frá Danmörku sérstaklega fyrir þennan dag og við fengum okkur pylsur með honum. Matthías minntist þess þegar Jóhann dýfði pylsu sinni í vatn því hann var geðbilaður drengur þá, en í dag hefur Jóhann þroskast eitthvað og hefur ekki gert sömu mistök síðan.
- Sjá nánar um þá frétt hér
Við tókum svo upp raunvörulegt atvik sem átti sér stað árið 2013 þegar Haraldur hárfagri konungur Noregs og Aðalráður konungur Englands hittust.
- Sjá nánar hér