- Gefið út
Íþróttadagurinn
- Rithöfundar
Á íþróttadeginum hafðir þú val um hvort þú vildir fara á Úlfarsfell, hjólaferð eða fara í Fossvogsdal.
Biskupsreglan fór að sjálfsögðu á Úlfarsfell. Það vantaði frekar marga úr reglunni þennan dag, hvernig skildi það hafa gerst? 🤷
Við mættum í skólann, bjuggum okkur til nesti og tókum strætó til fjallsrót Úlfarsfells
Við löbbuðum upp fjallið með engum vanda og spiluðum sumartíman og önnur íslensk lög. Við hættum á endanum að syngja með því Gylfi fór að spila lög sem enginn veit hver eru.
![Uppi á fjallinu](https://cms.biskupsreglan.com/static/images/faerslur/ulfarsfell/utsyni-2.jpg)
Eftir að komast upp fyrsta hólinn fórum við upp á hann seinni.
![Hinn hólinn](https://cms.biskupsreglan.com/static/images/faerslur/ulfarsfell/holl.jpg)
Á hinum var stór útsýnispallur og við skemmtum okkur mjög vel þar
![Jóhann brosandi](https://cms.biskupsreglan.com/static/images/faerslur/ulfarsfell/johann-brosa.jpg)
![matthías brosandi](https://cms.biskupsreglan.com/static/images/faerslur/ulfarsfell/matthias-brosa.jpg)
Sigurdór tekur „óvart" mynd af sjálfum sér í staðinn fyrir Jóhann.
![Sigurdór tekur mynd af sjálfum sér](https://cms.biskupsreglan.com/static/images/faerslur/ulfarsfell/sigurdor-taka-mynd.jpg)
Það var frekar mikil þoka þennan dag.
![Mynd af pallinum](https://cms.biskupsreglan.com/static/images/faerslur/ulfarsfell/pallur-1.jpg)
![Mynd af pallinum](https://cms.biskupsreglan.com/static/images/faerslur/ulfarsfell/pallur-2.jpg)
Eftir mikla skemmtun á pallinum var Jóhann þreyttur
![Jóhann að geispa](https://cms.biskupsreglan.com/static/images/faerslur/ulfarsfell/johann-geispa.jpg)
Við ákváðum að fara svo á þriðja hólinn
![Þriðji hóllinn](https://cms.biskupsreglan.com/static/images/faerslur/ulfarsfell/johann-brekka.jpg)
Eftir þriðja hólinn fórum við heim, hressir og kátir eftir þessa frábæru ferð.